mbl.is - Erlendar fréttir
Fleiri hermenn kæra kynferðisbrot
Tilkynningum um kynferðisafbrot í bandaríska hernum fjölgaði um 11% á árinu 2009, samkvæmt skýrslu  frá varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Að mati ráðuneytisins má rekja fjölgunina til aukinnar hvatningar til fórnarlamba innan hersins um að tilkynna ef á þeim er brotið.
Honda innkallar gallaða bíla
Japanski bílaframleiðandinn Honda hefur tilkynnt um innköllun 410.000 bíla í Bandaríkjunum vegna kvartana yfir bremsubúnaði þeirra. Stutt er síðan japanski bílaframleiðandinn Toyota þurfti að innkalla átta milljónir bíla af öryggisástæðum vegna frétta um bilanir í bremsubúnaði.
Þyrla kom hesti til bjargar
Þyrlu var flogið að ánni Gilda í Arizona til að bjarga hestinum Colorado og knapa hans sem höfðu lent í ánni. Þegar knapinn var kominn á þurrt var hesturinn deyfður og bundið um augu hans áður en hann var hafinn á loft og flogið með hann á þurrt land.
Úthelltu blóði fyrir lýðræðið
Þúsundir mótmælenda í Bankok í Tælandi úthelltu þrjúhundruð lítrum af eigin blóði úr flöskum fyrir utan skrifstofu forsætisráðherra landsins og kölluðu það fórn fyrir lýðræðið. Ekkert lát virðist vera á mótmælunum í Tælandi sem hófust á föstudag.
Prestur sem skipti um kyn segir af sér
Finnskur prestur, sem skipti um kyn og snéri aftur til starfa sinna fyrir fjórum mánuðum, hefur ákveðið að segja af sér embætti. Að sögn finnskra fjölmiðla mun presturinn láta af störfum í apríl.
Keltneskt blóð í víkingaæðum
Rannsóknir á erfðaefni norrænna manna, sem jarðaðir voru á Suður-Grænlandi fyrir um þúsund árum, sýna að í æðum víkinganna rann keltneskt blóð. Danskir fornleifafræðingar sem rannsaka norrænar mannvistarleifar í Grænlandi hafa fundið út að nokkrar beinagrindur eru frá því um árið 1.000.
Skipaflutningar lamaðir í Finnlandi
Verkfalla hafnarverkamanna í Finnlandi er farið að valda fyrirtækjum í timbur- og pappírsiðnaði búsifjum. Pappírsframleiðandinn UPM hefur lokað þremur pappírsverksmiðjum og aðrar nýta aðeins brot af afkastagetu. Stórar sögurnarmyllur hafa óskað eftir því að deilan verði sett í gerðardóm.
Hótara sleppt í Svíþjóð
Manni, sem grunaður er um að hafa hótað fjöldamorðum í Konunglega tækniháskólanum í Stokkhólmi, var sleppt úr haldi lögreglunnar í Stokkhólmi í dag. Maðurinn var handtekinn í Gautaborg aðfaranótt mánudags eftir að slóð hans á netinu hafði verið rakin.
Dagur reiði" í Jerúsalem
Palestínumenn köstuðu grjóti að ísraelskum lögreglumönnum í austurhluta Jerúsalem í dag til að mótmæla enduropnun hinu fornu Hurva samkunduhúsi gyðinga. Í mótmælaskyni höfðu Hamas samtökin lýst yfir degi reiði."
Fuglaflensa í Rúmeníu
Bráðsmitandi fuglaflensuveira (H5N1) hefur fundist í Rúmeníu. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun staðfesta í dag hættusvæði sem rúmensk stjórnvöld hafa skilgreint vegna veirunnar. Hún fannst í afskekktu kjúklingabúi í Letea í Tulcea héraði, við óshólma Dónár nálægt landamærum Úkraínu.
Vestrænir sendimenn gagnrýna gabbfrétt
Vestrænir sendimenn hafa bæst í hóp þeirra, sem gagnrýna harðlega gabbfrétt sjónvarpsstöðvar í Georgíu um helgina um að rússneski herinn hefði gert innrás í landið. Fréttin olli miklu uppnámi meðal almennings en stjórnarandstæðingar fullyrða að hún sé runnin undan rifjum stjórnar landsins.
Verkfallsfélag í kosningasnatti
Tölvupóstur sem breska dagblaðið Daily Telegraph hefur séð sýnir að verkalýðsfélagið, sem ætlar að leggja niður störf hjá British Airways, rær að því öllum árum að tryggja Gordon Brown og Verkamannaflokknum áframhaldandi völd í Bretlandi.
Nemendur hóta morðum í Svíþjóð
Eftirhermur hóta nú á netinu að koma vopnaðir í skóla í Svíþjóð og drepa þá sem fyrir verða. Sérfræðingar tala um smitáhrif eftir fjöldamorðshótunina í Konunglega tækniháskólanum. Loka varð skóla í Västervik þar sem hótarinn fannst ekki.
Fimm ára drengur fannst heill á húfi
Fimm ára dreng sem var rænt í Pakistan hefur verið skilað heilum á húfi, samkvæmt upplýsingum frá breskum stjórnvöldum. Drengnum, Sahil Saeed, var rænt af heimili ömmu sinnar í Jhelum í Pakistan þann 3. mars sl. Samkvæmt frétt BBC fannst hann í morgun í bænum Dinga skammt frá Jhelum.
Neyðarástandi lýst yfir á Fídji
Stjórnvöld á Fídji-eyjum hafa lýst yfir neyðarástandi vegna fellibyljar sem reið yfir hluta eyjaklasans í nótt. Vitað er um nokkur dauðsföll vegna veðurofsans en um 17 þúsund manns flúðu heimili sín og halda til í neyðarskýlum. Fellibylurinn Tomast er flokkaður sem fjórða stigs fellibylur.
Kanadamenn stórauka selveiðar
Ríkisstjórn Kanada hefur ákveðið að auka selveiðar við austurstrendur landsins í ár. Heimilaðar hafa verið veiðar á 330.000 dýrum í ár en í fyrra var kvótinn 280.000 dýr.
Lofa að aðstoða Grikki
Fjármálaráðherrar evruríkja lofa að aðstoða Grikki í fjárhagsvanda þeirra en lofa engum tryggingum fyrir láni. Skuldir Grikkja nema tæpum 113% af landsframleiðslu, samanborið við 78% hér á landi.
Mótmælendur gefa blóð
Talsmaður mótmælenda í Taílandi var sá fyrsti til að gefa blóð. Til stendur að safna þúsund lítrum og hella niður við þinghús landsins klukkan 11 að íslenskum tíma.
Dagblaðið New York Times hefur komist á snoðir um að fulltrúi bandaríska varnarmálaráðuneytisins, að nafni Michael D. Furlong, hafi ráðið verktaka frá einkareknum öryggisfyrirtækjum við leit að eftirlýstum skotmörkum í Afganistan og Pakistan.
Alvarlegasta deilan í 35 ár
Sendiherra Ísraels í Bandaríkjunum telur samskipti ríkjanna tveggja ekki hafa verið stirðari í 35 ár að sögn ísraelskra fjölmiðla.Deila ríkjanna er til komin vegna tilkynningar ísraelskra stjórnvalda um byggingu nýrra landnemabyggðar í austurhluta Jerúsalem á sama tíma og Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna var í heimsókn í Ísrael.
Nýsjálendingar með hvalveiði?
Nýsjálendingar munu nú vera að íhuga að styðja þá hugmynd Alþjóðahvalveiðiráðsins að leyfa takmarkaðar hvalveiðar en jafnframt draga úr fjölda þeirra hvala sem veiddur er á hverju ári í vísindaskyni.
Sprengjuárás í Bangkok
Spenna jókst í Bangkok í dag þegar tveir hermenn særðust eftir að þremur handsprengjum var kastað að herstöð þar. Enginn hefur enn lýst ábyrgð á sprengjutilræðinu á hendur sér en mótmæli hófust á föstudag í því að skyni að fá stjórnina til að segja af sér og efna til kosninga.
Aukin spenna í Jerúsalem
Gripið var til umfangsmikilla öryggisráðstafana í Jerúsalem í dag þegar heittrúaðir gyðingar fögnuðu enduropnun Hurva synagógunnar. Friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna urðu að engu í vikunni þegar Ísraelar tilkynntu um fjölgun landnemaíbúða á hernumdum svæðum.
Sprengt á meðan talið í Írak
Sjö manns týndu lífi og um tuttugu slösuðust þegar bílsprengja sprakk í Anbar héraði í Írak. Írakar bíða nú úrslita þingkosninga sem fóru fram í skugga sprengjuárása og manndrápa þegar um 40 manns týndu lífi þann 7. mars síðastliðinn.
Myrti sex nýfædd börn sín
Tæplega fertug frönsk kona hefur játað að hafa myrt sex börn sín strax eftir fæðingu þeirra. Börnin eignaðist konan á árunum 1999 til 2007. Hún á yfir höfði sér ævilangt fangelsi.
Sundkennari sakaður um misnotkun
Hollenskur sundkennari verður leiddur fyrir dóm 31. maí næstkomandi. Hann er sakaður um kynferðislega misnotkun á 58 ungum börnum, að því er embætti saksóknara sagði í dag. Kærurnar varða 45 tilvik þar sem samtals 58 börn komu við sögu í meintri misnotkun mannsins.
Slóttug söngkona grunuð um morð
Lögreglan í Baden-Württemberg rannsakar nú mál sem gæti verið ættað úr heimi glæpasagna. Í aðalhlutverki er 71 árs gömul óperusöngkona og eiginmaður hennar og jafnaldri, Hermann H., sem hvarf sporlaust. Hvarfið var tilkynnt í október s.l.. Lögregluna grunar að söngkonan eigi þátt í mannshvarfinu.
Áfram leiðtogi þó hann tapi
Gordon Brown, forsætisráðherra Breta og formaður Verkamannaflokksins þar í landi sagðist í dag stefna að því að halda áfram sem leiðtogi flokksins fari svo að hann tapi í þingkosningunum í vor.
Fíklar og feitir aftar í biðröð
Nærri 40% Dana telja að fíkniefnaneytendur, áfengissjúklingar, reykingafólk og fólk í mikilli yfirþyngd eigi ekki skilið að fá jafn skjóta læknismeðferð og aðrir þjóðfélagshópar. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem Danska ríkisútvarpið greinir frá.
Brown skammaði utanríkismálastjóra ESB
Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, lét Caroline Ashton barónessu, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins, hafa það óþvegið vegna slælegrar frammistöðu hennar í Brussel. Forsætisráðherrann mun hafa sagt ítrekað að hún væri að bregðast Bretlandi að því er heimildir Daily Mail herma.