mbl.is - Íþróttir

Sex leikmenn þrefaldir meistarar í badminton
Íslandsmót unglinga í badminton fór fram á Akranesi um s.l. helgi og þar náðu sex leikmenn þeim árangri að verða þrefaldir Íslandsmeistarar. Alls voru 227 leikmenn skráðir til leiks en þeir komu frá 13 félögum: Aftureldingu, BH, Hamri, Kelfavík, KR, ÍA, TBA, TBR, TBS, Samherja, UMFH, UMSB og UMS Þór.

Átta á unglingamót í badminton í Berlín
Unglingalandslið Íslands í badminton, skipað leikmönnum undir 19 ára aldri, er komið til Berlínar í Þýskalandi og tekur þar þátt í alþjóðlegu móti sem hefst á fimmtudaginn.

Vorum svellkaldir
Gamla brýnið Sigurður Sveinn Sigurðsson reyndist SA dýrmætur gegn Birninum í Egilshöllinni í kvöld þegar hann skoraði og jafnaði leikinn í 2:2. SA sigraði 3:2 og knúði fram oddaleik á sínum heimavelli.

Enginn sagði að þetta yrði auðvelt
Gunnar Guðmundsson fyrirliði Bjarnarins, var eðlilega svekktur yfir úrslitunum gegn SA í kvöld en bjartsýnn á að Björninn geti fagnað sigri í oddaleiknum á Akureyri á miðvikudagskvöldið. SA sigraði 3:2 í Egilshöllinni og knúði fram oddaleik.

SA knúði fram oddaleik gegn Birninum
Fjórði úrslitaleikur Bjarnarins og Skautafélags Akureyrar um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí hófst í Egilshöll klukkan 19:15. SA sigraði 3:2 og knúði fram oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn sem fram fer á Akureyri. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

Björninn Íslandsmeistari í kvöld?
Björninn úr Reykjavík getur í kvöld tryggt sér Íslandsmeistaratitil karla í íshokkí í fyrsta skipti en fjórði úrslitaleikur liðsins gegn Skautafélagi Akureyrar hefst í Egilshöllinni klukkan 19.15.

Óðinn bætti sig vel
Óðinn Björn Þorsteinsson, kúluvarpari úr FH, bætti um helgina sinn persónulega árangur í kúluvarpi innanhúss þegar hann varpaði kúlunni 19,50 metra á kastmóti í Kaplakrika. Ég er auðvitað mjög sáttur með þetta enda hafði ég kastað lengst 19,24 þannig að þetta er fín aukning, sagði Óðinn Björn í samtali við Morgunblaðið.

Pétur varð tvöfaldur meistari
Pétur Eyþórsson, glímukappi úr Ármanni, varð um helgina Íslandsmeistari, bæði í -90 kg flokki og opnum flokki. Hann tryggði sér titilinn í opnum flokki þegar hann varð í öðru sæti í Bikarglímu Íslands, en þar sigraði Pétur Þóri Gunnarsson úr Mývetningi.

Björninn hafði betur í vítakeppni
Björninn náði í dag 2:1 forystu í úrslitaeinvíginu við SA um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkíi karla með sigri í þriðja leiknum, 4:2, eftir vítakeppni. Snorri Sigurbergsson markvörður Bjarnarins varði öll fjögur víti SA. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

Íslandsmet hjá Helgu Margréti
Helga Margrét Þorsteinsdóttir úr Ármanni setti Íslandsmet í fimmþraut á sænska meistaramótinu innanhúss í dag. Hún fékk 4.205 stig og varð í öðru sæti en gamla metið, sem hún átti sjálf, var 4.018 stig.

Guðmundur og Lilja Rós meistarar
Víkingarnir Guðmundur E. Stephensen og Lilja Rós Jóhannesdóttir urðu í dag Íslandsmeistarar í einliðaleik í borðtennis auk þess að vinna einnig til verðlauna í tvíliða- og tvenndarleik.

Helga Margrét þriðja eftir þrjár greinar
Frjálsíþróttakonan Helga Margrét Þorsteinsdóttir er í þriðja sæti í fimmtarþraut á sænska meistaramótinu innanhúss í Stokkhólmi þegar þrjár greinar eru að baki.

Katrín Eva sterk í Bandaríkjunum
Katrín Eva Auðunsdóttir sigraði í dag í sínum flokki á fitnessmóti í Bandaríkunum, móti sem kennt er við Arnold Schwarzenegger.

Árslaun Ragnars rúmar 14 milljónir
Ragnar Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður sænska úrvalsdeildarliðsins IFK Gautaborg, er í 25. sæti yfir þá leikmenn í deildinni sem þénuðu mest á síðasta ári.

Alltaf gaman að spila heima
Guðmundur E. Stephensen freistar þess að verja Íslandsmeistaratitil sinn í borðtennis um helgina en hann hefur unnið þann titil sextán ár í röð eins og frægt er. Íslandsmótið fer fram í TBR-húsunum og hefjast úrslitaleikir karla og kvenna þar klukkan 14 á morgun.

KA vann deildakeppni karla í blaki
KA-menn tryggðu sér í gærkvöld sigur í deildakeppni karla í blaki í fyrsta skipti í 17 ár með því að vinna Þrótt R. örugglega á útivelli, 3:0. Hrinurnar enduðu 25:18, 25:14 og 25:18.

Helga í hörkukeppni í Stokkhólmi
Helga Margrét Þorsteinsdóttir, frjálsíþróttakona úr Ármanni, keppir á sænska meistaramótinu í fimmtarþraut á morgun. Keppt verður í Sätrahallen í Stokkhólmi.

SA lagði Björninn og jafnaði 1:1
Skautafélag Akureyrar sigraði Björninn, 7:4, í öðrum úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí karla í Skautahöllinni á Akureyri í dag. Staðan í einvíginu er því 1:1.

Íslandsmótið í borðtennis um helgina
Íslandsmótið í borðtennis fer fram í Íþróttahúsi - TBR við Gnoðarvog helgina.  Allt besta borðtennsfólk landsins mun leika á mótinu og mun Guðmundur E. Stephensen freista þess að verja titil sinn í meistaraflokki karla í 16. sinn.

Í keppnisbann fyrir að troða sér fremst í röðina, myndband
Bjørn Einar Romøren skíðastökkvari frá Noregi er ekki vinsælasti íþróttamaður Noregs um þessar stundir. Í gær var hann úrskurðaður í keppnisbann vegna framkomu sinnar á opnunarhátíð skíðastökkpallarins í Holmenkollen í Osló.

Björninn skellti Akureyringum
Björninn lagði Skautafélag Akureyrar að velli, 4:1, í fyrsta úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitil karla í íshokkí sem fram fór í Skautahöll Akureyrar í kvöld.

Bílslysið stoppar ekki lurkinn
Stemningin hérna fyrir norðan er gríðarlega góð og það er mikill hugur í mannskapnum, sagði Rúnar Freyr Rúnarsson, sóknarmaður Skautafélags Akureyrar, þegar Morgunblaðið heyrði í honum hljóðið í gærkvöldi.

Guðmundur og félagar í úrslitakeppnina
Guðmundur E. Stephensen og félagar hans í sænska úrvalsdeildarliðinu BTK Warta tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni í gær með 3:2 sigri gegn Halmstad BTK. Guðmundur lék gegn Kínverjanum Wang Yin Zhou í einliðaleik og hafði betur 2:1 (11:8, 12:14 og 11:5). Íslandsmeistarinn lék í tvíliðaleik með Robert Nilsson en þeir töpuðu þeim leik 2:1 (7:11, 11:8 og 6:11).

Elísabeth bikarmeistari og Guðbjört Íslandsmeistari
Bikarglíma kvenna í glímu fór fram fram í gærkvöldi í íþróttahúsi Melaskóla. Elísabeth Patriarca varð tvöfaldur bikarmeistari þ.e. bæði í + 65 kg og opnum flokki kvenna. Guðbjört Lóa Þorgrímsdóttir varð einnig tvöfaldur Íslandsmeistari kvenna en þá fór fram lokamótið í meistaramótaröð Glímusambandsins. Guðbjört Lóa varð stigahæst bæði í + 65 kg flokki og opnum flokki kvenna og þar með Íslandsmeistari.

Kanadamenn leita að kylfu, hanska og pekki
Forráðamenn kanadíska landsliðsins í íshokkí hafa á undanförnum dögum leitað að ýmsum hlutum sem tengjast Sidney Crosby sem tryggði Kanada gullverðlaunin í framlengdum leik gegn Bandaríkjunum. Crosby henti frá sér hönskunum og kylfunni þegar hann fagnaði markinu, og hefur aðeins annar hanskinn skilað sér. Pökkurinn sem notaður var í leiknum er einnig horfinn en forráðamenn landsliðsins vilja fá þessa hluti aftur til varðveislu á safni.